Aksjón á Kleppsvegi 50spjallari

Vona það séu ekki allir búnir að gefa upp vonina...og að einhver leggi leið sína inn á þetta blogg.

Dagurinn í gær var ekki eins og hver annars þriðjudagur...ég gerði svolítið sem ég hef ekki gert síðan ég man eftir mér, fór heim veik úr vinnunni. Er semsagt orðin veikari en ég hef orðið síðan ég var krakki. Er með svo bólgna eitla að ég get ekki snúið hausnum á mér til hliðar, andlitið á mér er að springa og virðist ekki geta ákveðið mig hvort mér sé of heitt eða kalt...kvart, kvart get sjálfum mér um kennt að geta ekki tjillað aðeins heima hjá mér þegar ég verð smá veik. 

Allavega, nóg að kvarti um mig...aðal aksjón gærdagsins var þegar bróðir minn hringir í mig kl 10 um kvöldið, og biður um nr. hjá Huldu (siminn hjá pabba var dauður og hann er í sumarbústað með henni) vegna þess að lögreglan þarf að hringja í hann (pabba).  Fyrsta sem mig datt í hug var damn it þeir lentu í slagsmálum...en nei þá höfðu þeir verið að leika sér með dúkahníf (ekki spyrja mig hvers vegna og til hvers) og einn félagi Krissa hafði skorið sig í handlegginn svo djúpt að það sprautaðist blóð um allt...þeir hringdu á sjúkrabíl og með fylgdi lögreglubíll með.
Að sögn bróður míns og félaga var þetta eins og framið hefði morð á kleppsveginum, krissa var bannað að fara heim til sín, þeir voru inni með vasaljós að leita að dópi, hentu víst kristjáni upp við vegg þegar hann bentu þeim á ljósrofan...það var allavega aksjón hjá þeim.

Var í smá ævintýraleit og ákvað að kíkja á kleppsveginn, kærasta stráksins sem skarst var víst alveg í áfalli...og fannst alveg sniðugt að fara og tékka á henni, treysti 3 metal-gaurum til að sjá um hana....eina sem ég fékk að skipta mér að var brjálaður pabbi í símanum og krissi að tjúllast við hliðina á mér.  Þetta var nú meira ruglið.

Held þeir hafi lært smá lexíu...aldrei að leika sér með dúkahníf aftur.

Læt ykkur vita ef það verður framhald af þessari sögu...

Fyrsta vetrarfærslan... eða kannski réttara að segja fyrsta haustfærslan!spjallari

Hvenær er betra að henda inn nýrri bloggfærslu en nóttina áður en maður fer í próf? Það er nú einmitt þannig að maður nennir ekki að blogga nema þegar maður hefur eiginlega ekki tíma til þess, ekki satt!!
Já, sumarið er endanlega búið í mínum huga, enda veðrið í dag eins og það sé miður október. Fór í dúnúlpunni út í 10-11 í morgun, því það var svo kalt og hráslagalegt.  Veðrið var hins vegar það eina sem hélt mér við bækur og glósur í dag, allavega svona í skorpum. Náði að læra meira en ég hefði nokkurn tímann þorað að vona, en samt ekki næstum því nóg...en hvenær lærir maður samt nóg? Ég hef í það minnsta ekki farið í próf síðan í MH þar sem mér hefur fundist ég vera vel lærð!

En veturinn má svosem alveg koma, því þetta er búið að vera frábært sumar í alla stað, ekki sammála stúlkukindur? Göngur sumarsins heppnuðust vel, bæði Núpsstaðaskógur- Skaftafell og Fimmvörðuhálsinn, þó þær hafi verið skemmtilega ólíkar. Finnst samt svolítið sorglegt að hafa ekki komist í fleiri, en það verður bara næsta sumar...
    Þá tókst okkur að djamma nokkuð oft, en árshátíð skvísuspjalls var náttla toppurinn!! Hlakka til að ári, enda verður næsta árshátíð ekki bara haldin í Jien?? Í Frakklands road-trippinu okkar??!!
    Vonandi voru svo allir jafn ánægðir með vinnuna sína í sumar og ég var. Sá loksins eitthvað sem ég get hugsað mér að vinna við sem tengist þessu blessaða námi sem ég er í og það var mjög ánægjuleg uppgötvun! Og einmitt núna í fyrsta skipti á ævinni hefði ég getað hugsað mér að halda áfram að vinna, en venjulega hef ég ekki getað beðið eftir að komast í skólann aftur. Það vill nú samt til að þetta er síðasta árið... í bili allavega!

En já... þetta verður vonandi ekki síðasta færslan í ágúst... stelpur, koma svo!!
Kv, Villa pilla... sem er að fara í sumarpróf eftir 8 klst. og 40 mín....

Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: spjallari
  • Netfang: Sigrún:sib11@hi.is, Villa:vig5@hi.is, Lilja:lib2@h

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Hvort bloggið er betra?