Án titilsspjallari
Hvað finnst ykkur um mál málanna, atvinnubílstjórar vs. lögreglan?? Ég fylgist meðá netinu og gapi hálfpartinn yfir þessum skrípaleik..
En já, þar sem hvorki var kominn nýr þáttur af Despó eða Grey´s í gær og ég þreytt
í miklu kúra og gláp stuði fann ég mér nýjann þátt...Gossip Girl og hann var bara svona
andskoti skemmtilegur
ALgjört drama...heheGangi ykkur nú vel í próflestri lömbin mín ég hugsa til ykkar

Sigrún
Blóðbað og bál á Eggertsgötunnispjallari
Já, sambýlingur minn hún Ragnhildur dró fram tvo æðaleggi fyrr í kvöld og við ákváðum að æfa kunnáttu okkar og stinga hvor aðra. Mjög gaman. Það frussaðist reyndar hressilega úr mér þannig að það þurfti tvær aukahendur að láni frá Lilju til þess að afgreiða málið!! Vona að hún sé búin að jafna sig greyið.En þetta var nú bara formálinn að því skondnasta!! Hvað áttum við nefnilega að gera við nálarnar, blóðugar og mengaðar? Nei, ekki hendir maður þeim bara í venjulegt rusl, það væri glæpur. Og stendur ekki á gulu döllunum á spítalanum: ,, Sóttmengað- BRENNIST?''
Hins vegar var hópur ungmenna úti á túninu fyrir framan húsið og atburðarrásin frá þeirra sjónarhorni hefur kannski meira verið svona: Tvær stelpur koma út á svalir, báðar með risastóra plástra á handabökunum, troða nálum ofan í e-ð, hella einhverju yfir og kveikja í. Og það var heljarinnar bál sem myndaðist þarna á svölunum!! Saklaus ungmennin hafa eflaust dregið þá ályktun að það væru dópistar sem byggju í 202!!
En hvað sem öðru líður, þá eru nálarnar örugglega ekki smitandi lengur, ef einhver óáran skyldi búa í blóðinu okkar. Og nágrannarnir hafa eflaust meiri áhuga á okkur fyrir vikið:)
Meira seinna...
p.s. Svo mæti ég í fyrramálið á BUGL, útstungin með stæðarinnar hematóm á handabakinu:) Ávallt gaman að vera hjúkkunemi!!
Nú er ég sko pirruð!!!spjallari
13 bls af fyrirlestri HORFIÐ og óseifað!!! Aaaarg. Hvað gerir maður þá???Ætla henda upp í mig nokkrum mg af ibufeni róa höfuðverkinn og endurgera þetta show ; ) Róa mig bara við að ég er mjög heppin að vera við fulla heilsu. og gæti margt verra komið fyrir...
Róum taugarnar saman í kvöld yfir funky hvítvíninu sem við keyptum í gær...og sushi ; )
Bæó í bili,
verðum að standa saman á þessum erfiðum tímum...
Manu vælukjói
Rigor mortis!!spjallari
eða dauðastirðnun heitir víst ein black metal hljómsveit...maður lærir alltaf e-ð áhugavert í próflestri ; ) Svo eru tvær hljómsveitir sem heita postmortem og ein sem heitir því fallega nafni autopsy...frekar spes.Annars er ég ekki að nenna að læra fyrir þetta próf...hefði alveg farið létt með að fá mér eina hvítvín og skella mér á dansgólfið í gærkvöld.
Hvernig var annars helgin hjá ykkur?? Var farið inní þórsmörk?? Og já villus ertu að vinna kvöldvakt fös og laugard. kvöld næstu helgi??
bæjó í bili...
kv. Manu vælukjói
Þá er komið að því...spjallari
... ég er sest inná bókasafn og meiningin er að byrja að læra. Tjah, þegar ég er búin að fara blogg-rúntinn, facebook-rúntinn, barnalands-rúntinn, tékka HI- meilið... jámm!! Ætlaði líka að byrja kl.8 í morgun að læra, þurfti að vakna til þess að henda Þorsteini út úr rúminu... en þegar hann var farinn var bara oooof freistandi að skríða uppí aftur sem og ég gerði og svaf til kl. 11:30 þegar Lilja gerði tilraun til þess að vekja mig!! Jámm... ég er náttla alveg!!En semsagt... er búin að ákveða að flytja aðsetur mitt uppí VR fram til 14. maí næstkomandi... og er líka að spá í að taka tölvuna ekki með mér á morgun!! Ef einhver vill djoina í lærdómnum þá ætla ég alltaf að vera með kaffi á brúsa með mér... svona í tilefni kreppunnar
Annars vorum við á leitartækninámskeiði um helgina og það var bara alveg ágætt... bjóst alveg við því verra!! Það var mjög gott að Manú kom ekki með... og enn betra að hún komi ekki með til Köben
Jæja, hætt þessu rausi...
Kv, Villus
