Allir að klæða sig vel...spjallari
Því það verður skítakuldi um helgina!!!WE HAVE A WINNERspjallari
1) Anne Hathaway


3)Jessica Alba

4) Helen Mirren

5) Nicole Kidman

Þetta eru mínar topp 5 konur. Veit að þið eruð ekkert endilega sammála mér en kommentið þá ykkar topp 5. Best að skoða kjólana á www.oscar.com.
Kv, Sigrún
Framhald...spjallari
... af húsnæðismálum!Eggertsgata 22... verður heimili mitt frá 3.mars næstkomandi
og þá er það bara að krossa fingur og vona að sambýlingur minn verði sæmileg mannvera, að hún fari ekki að sofa kl.22 á hverju kvöldi, eldi ekki mjög lyktsterkan mat...o.s.frv. Við þurfum nebbla að deila klósetti, hmm... ekkert svakalega spennó
Kv, Villa... sem á að vera löööngu sofnuð!!
Andvaka...spjallari
Er að fara að byrja í stjórnunarverknámi á A7 í fyrramálið og VÁ hvað ég hlakka ekki til... skil ekki verkefnið sem ég átti að gera fyrir daginn og allt í vitleysu bara! Vælivæl...
Er líka alveg að fríka út, ég nenni svo ekki þessari önn. Mig langar bara að spóla yfir mars og apríl og byrja næst á maí bara:) Einhver memm í það verkefni?? Reyndar eru ljósir punktar inná milli, djamm á föstudaginn, hittingur hjá Þórsmerkurgenginu á laugardaginn og letidagur á sunnudag. Man bara ekki hvenær það var leitdagur um helgi síðast... það er alltaf annað hvort vinna eða hjálparsveitin sem rænir helgunum af manni!! Þessi helgi verður því án efa ljúf:)
En helgin byrjar ekki fyrr en kl.16:00 á föstudaginn... þangað til eru 4 dagar á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi...
Jæja, ætla að fara að gera aðra tilraun til þess að sofna.... annars fann ég svoldið sniðuga leið til þess að svæfa sjálfan sig um daginn!! Höggva spor! Loka bara augunum og lifa sig virkilega inní það... virkar miklu betur en að telja kindur!
Góða nótt, Villa vælukjóaspói!
Vistaskipti...spjallari
Já... eins og eflaust allir vita núna er búið að selja Hamrahlíðina... þ.e.a.s. ef ******* nágrannarnir skrifa undir skjalið um að þau ætli ekki að nýta sér forkaupsrétt sinn...Og eins og eflaust allir vita líka, eru búnar að vera miklar spekuleringar um hvert skuli halda þegar þarf að tæma slotið... réttarasagt fyrir laugardaginn 1. mars eftir nákvæmlega 2 vikur og 3 daga!! Já... það eru búnar að vera miklar blikur á lofti, fyrst var það Akranes, svo kannski Naustó, svo að leigja mér herbergi ein, svo að leigja íbúð með mömmu, svo að reyna að væla í forsvarsmönnum studentagarðanna um forgang á biðlista, svo... það allra besta og skynsamlegasta... sem er sennilega alveg niðurneglt núna...
...HVERAGERÐI honey!!!
Já, mamma getur fengið raðhús í Hveragerði fyrir helmingi minni pening en kostar að leigja í Reykjavík. Húsaleigubæturnar eru svo helmingurinn af því. Þá endar það á því að vera næstum ódýrara en það sem myndi kosta að kaupa lykil í göngin og leigja geymslu fyrir búslóðina hérna í bænum! Það stefnir því allt í að við verðum Hvergerðingar von bráðar... og mér líst bara hreint ekkert illa á það!!!
Þið komið svo bara í helgarafslappanir til mín og við getum líka endurnýjað kynni okkar af Henglinum.. tjaldað í Innstadal og reynt að komast rétta leið inní Dyradal!!!
Smá upplýsingafærsla í boði: Villu:)
Takk fyrir helgina!!spjallari
Þetta var meiri helgin hjá okkur, mér (og reyndar okkar allra) til mikillar ánægju þá var þetta bara hin dýrindis ferð. Kannski ekki þægindi í gistingu í fyrirrúmi en...væri jafnvel til í aðra svona ferð bráðum aftur, þótt ég myndi nu kjósa einhverm huggulegan skála þar sem fötin geta þornað og maður vaknar ekki undir snjó ; )Annars meðan við erum á þessum nótunum þá var ég að velta fyrir mér með laugavegsgönguna okkar vinsælu, er ekki að stressa alla en held samt það væri ekki svo vitlaust að fara ákveða eina helgi sem sem flestir komast, þar sem flestir eru að fara PLANA sumarfríið sitt um þessar mundir. Sigrun, hvenær hentar þér?
Var að detta í hug helgina 17-20. eða 24-27. júlí. Datt í hug það væri fint að fara um þennan tíma. Endilega heyrið í því fólki sem treystir okkur og nennir að fara með okkur laugaveginn.
Fyrir utan það að vera alltaf að hugsa hvað mig langi aftur uppá fjöll þá er voða lítið að frétta af mér, bara same old...nenni ekki í skólan, og þegar ég loksins drulla mér þá er ég ekkert að fylgast með, nenni ekki í ræktina...en hvað það væri gott líf ef maður gæti bara verið að vinna sem gönguleiðsögumaður...þyrfti ekki að fara í ræktina (væri alltaf að ganga) og mætti vera alltaf uppá fjöllum og fengi pening fyrir það...næs.
Hvað segið þið með að fara á skíði/bretti bráðlega. Einhver föstudag eftir skóla? Eða þarnæstu helgi? langar svo mikið...og er búin að langa í nokkur ár, en ekkert gert í því ; (
hafið það gott,
Manólulu
Bernal í rassinum á mér!!spjallari
já, veit ég er búin að monta mig á þessu 1000 sinnum, en þetta var svo...skemmtilegt. Fyrir þá sem eru ekki búin að heyra söguna, þá ákvað ég að fara hreyfa á mér bossann í líkamsræktinni í gær, sá lítinn gaur hugsaði æji hvað hann er krúttlegur, kannast e-ð við hann, já pottþétt vinur siggu sem ég hef verið að bulla e-ð í á spænsku einhverntíman...best að vera ekki að kíkja til hans. Þessi gaur var samt aðeins of sætur til að ég myndi muna svona lítið eftir honum...þá rann upp fyrir mér hvar ég hafði séð hann..jújú...þetta er dragdrottningin í mala educación, Che guevara í motocycle...úfffff mér leið mjög undarlega þar sem hann var á hlaupabretti beint fyrir aftan mig, þorði sko ekkert að gera, var alltaf að spá í ef buxxurnar myndu rifna á rassinum (þær eru orðnar svo þröngar að ég er alltaf hrædd um að þær spengist utan af mér).Þetta finnst mér ekki fallegt!!spjallari

Ný vara í netverslun femin.is! Fæst aðeins í netverslun femin.is
C-String er ný og spennandi uppfinning í undirfötum fyrir konur. Segðu bless við óþægilegar nærbuxur með teygjum og skorum og heilsaðu frelsinu með hjálp C-string og vertu kynþokkafull í leiðinni...
Þú getur klæðst C-String undir öllum uppáhaldsfötunum þínum svo sem; drögtum, pilsum og buxum.
Stærðir:
Medium (10-12)
