Nýtt blogg, nýjir tímar...spjallari

Við vinkonurnar erum orðnar ansi pirr á blog.central.is (og víst ekki einar um það?? wonder why?) og ákváðum að prufa bloggar.is í staðinn, svona þannig að við getum sett inn myndir og soleiðis... Ekki síst vegna þess að Sigrún blessunin ætlar að fara að stúdera við Kaupmannahafnarháskóla og yfirgefa okkur í ár... Árið verður bærilegra efvið fáum myndir af og til:)

Við vinkonurnar ætlum að skella okkur til Köben af þessu tilefni, Sigrún og Manú fljúga núna kl.13 en ég og Lilja komum á föstudaginn þegar hún verður búin að massa sumarpróf í Líkindareikningi og tölfræði:) Komum svo aftur að viku liðinni, án efa með margar nýjar flíkur í farteskinu... enda sumarið farið í skálavörslu og fjallgöngur, en ekki fatakaup!
Lilja flaug heim úr Þórsmörk á mánudaginn, alltaf jafn flott á því!! Ég var svo rekin heim í gær, enda ekkert að gera... og við því officially komnar í sumarfrí... eða kannski frekar sumarið búið, veturinn byrjaður!!!

Skellum kannski inn svona eins og einni færslu í Köben.... en þangað til næst...ADIOS

Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: spjallari
  • Netfang: Sigrún:sib11@hi.is, Villa:vig5@hi.is, Lilja:lib2@h

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Hvort bloggið er betra?