Föstudagsfróđleikur!!spjallari
Við framleiðslu á grænu tei eru ný lauf gufusoðin til að koma í veg fyrir gerjun en við framleiðslu á svörtu tei eru telaufin látin oxast algjörlega og tekur það 2 til 4 vikur. Við tengingu við súrefni eyðist stór hluti andoxunarefnanna og í staðinn myndast súr og vatnsleysanleg efnasambönd. Oolong te er svo að hluta til látið oxast.Smá nördafćrsla...spjallari
jæja, ein bloggfærsla sem tengist mér ekki, en það er komið að stórum tímamótum hjá lillabró, hann er víst að fara spila á tónleikum 10.nóv...í hellinum...hehe...þennig að ef þið eruð nýjungagjarnar, þá væri gaman að dressa sig sem gothari og mæta á tónleikana...hehehehehe....það væri svoooooooooooo fyndið. Sjáum til með outfittið...Annars stóðum við villa okkur mega vel í gær, lærðum hnútana 1,2 og 3, og villa var farin að stökkva niður af brúninni eins og hun hefði æft sig allt sitt líf...En hvað segiði??? Verður það árshátið eða októberfest um helgina???
Tíminn líđur allt of hratt..spjallari
... og barasta bráðum komin jól. Allavega í IKEA!!! Ég get varla beðið eftir að fara í jólafrí:)
Annars er það af mér að frétta að ég er feitt að klúðra verknáminu mínu þessa dagana... allt í einu er það bara frekar erfitt og krefjandi og ætlast til þess að maður sé með allt á kristaltæru... sem ég er sko ekki:( Í gær meira að segja var hótað að fella mig... en mér til málsbóta þá svaf ég 5 tíma aðfaranótt sun, 4 aðfaranótt mán og svo var ég í skólanum frá 8-16 í gær og beint á kvöldvakt... Auk þess með linsur sem voru alveg að drepa mig... er þá nokkur furða að maður sé aðeins út á þekju???
Ég segi það enn og aftur, þegar maður er í verknámi þá á ekki að vera að blanda skólanum saman við, það er einfaldlega ooooooof mikið....
Jæja, ég ætla nú samt að enda þessa þunglyndislegu færslu á því að ítreka hinn æsiskemmtilega hjálparsveitarfund í kvöld þar sem verður farið í hnúta og línur... Jibbí!! Spurning um mat á grænum á undan því??'
Uppdeit dagsins...spjallari
Sælar skvísur,þá er dagurinn búinn...hittumst á baresso að góðum vana og fengum okkur einn chai ykkur til heiðurs ; ) erum annars búnar að vera á röltinu í allan dag og erum nokkuð lúnar í fótunum eftir allt labbið...munið að maður er skvísa í köben, stígvélum, hælum og svona.
Aðalafrakstur dagsins, voru afmælis-kápukaup Sigrúnar í urban...meeeega flott, víð, svört/hvít ullarkápuslá. Erum nú komar til Guðnýjar, og erum að elda andarbringur og meðlæti...pælingin er svo að enda á kaffi og amarula ; ) gera sér smá dagamun.
Annars sendum við til ykkar 1000 kossa, og væri gaman að hafa ykkur hjá okkur...og ekki gleyma djamminu okkar 4. jan...hlökkum til. Sigrún bætir við kaffihúsaferð 21.des, það verður tekið frá.
Besos,
Manu og sigrún.
Stefnumót á strikinu??spjallari
Sælar skvísur,Saga í bođi Sigrúnarspjallari
Ég veit ég er eftir á en ég er orðin húkt á Harry Potter! Svo í gær þegar ég var búinað pakka mér inn í sloppin og byrjuð að lesa ákváðum við Ásgeir að fá okkur
eftirrétt. Við áttum marengs (Ásgeir var svona myndarlegur) svo að ég saxaði
súkkulaði og ávexti. Þetta er svo ekki frásögu færandi nema hvað ég beit svona hrikalega fast í súkklaðibita sem var e-ð oddhvass greinilega
því að hann skrapaði flipa úr gómnum á mér! Og það blæddi og blæddi og blæddi..
Ógeðslega vont! Ég er nú þekktur hrakfallabálkur en aldrei hef ég slasað mig á
eftirétti!!
Besos
New York?spjallari
11.-15., eða 14.-20. janúar?? Flug á mann 45.550 kr, gisting á Hostel International við hliðina á Central Park 2400 kr. nóttin...Hvað segiði? Gera magnkaup í The North Face búðinni, kaupa upp Urban Outfitters, Victoria´s Secret og kannski gera eitthvað menningarlegt svona allavega inn á milli?? Getum farið á fræga hráfæðisveitingahúsið:)
Hvað segiði, einhver séns??
Boring fyrirlestur...spjallari
... og þess vegna ekkert betra að gera en að nýta nú tímann fyrst maður mætti á annað borð og BLOGGA!! Fyrirlesarinn er (samkvæmt áreiðanlegum heimildum) hinn ótrúlega leiðinlegi deildarkennari sem mun hafa mig í eftirdragi næstu 4 vikurnar... VÚHÚ!! Lofar ekki góðu...Helgin var skemmtileg, leið aðeins of fljótt þó! Svo er það bara októberfest á föstudaginn... verst bara að vera að vinna, ég var nefnilega búin að binda miklar, miklar vonir við októberfest;)
Hitting sem fyrst....
Jólagjöf ársins 2007...spjallari
...er klárlega forláta talstöðvarúr Doro WT89 sem fæst í Byggt og Búið! Einungis 4.792 kr!Hvađ er eiginlega máliđ...spjallari
... með fræðigreinar í enskum tímaritum???? Höfundarnir safna saman flóknustu og furðulegustu lýsingarorðum og samsettum orðum sem fyrirfinnast í enskri tungu og skella þeim saman í texta. Texta sem verður fyrir vikið afar samhengislaus við yfirlestur þegar það eina sem maður skilur eru samtengingarnar á milli blessaðra orðanna... Það sem toppar allt er náttúrulega sú staðreynd að þessi sömu orð eiga bara ekki heima í neinum orðabókum... hvorki orðabók.is, dictionary.com, ensk-íslenskri skólaorðabók, ensk-íslenskri tölvuorðabók né Oxford Advanced Learners Dictionary of Current English. Þarna er Bretinn sínu verri en samtungi hans Ameríkaninn.Og hvað gera bændur þá? Þegar þeir eru búnir að leita eins og brjálæðingar að grein um EÐLILEGAN þroska barna, (NB. það eru bara gerðar rannsóknir á afbrigðilegum þroska, nema hvað???) finna loksins grein með spennandi titil daginn sem átti að skila útdrættinum úr henni og skilja svo ekki neitt? Þá er lítið hægt að gera annað en að væla smá, blóta smá, fá sér kaffi og lesa aftur, meira kaffi og renna yfir hana einu sinni enn. Gera fleiri tilraunir til þess að fletta orðunum upp, ég meina þeir gætu alveg hafa uppfært orðabókina síðan fyrir 15 mínútum... Nú, svo getur maður náttúrulega byrjað að leita sér að nýrri grein kl.20:00 þann dag sem maður átti að skila útdrættinum, þó maður sé nánast búinn að eyða deginum í að reyna að skilja hina helv**** greinina! Já,já... heppinn ef maður finnur grein sem er styttri en 20 bls með Times new Roman 8 punkta letri... Svo kl.24:00 þegar maður er búinn að eyða 4 tímum í 3 bls. af þessum 20 þá er kannski bara betra að halla sér aftur að hinni greininni....
Ég sem hélt að spennandi titill hlyti að þýða áhugaverð grein ekki satt? Og ef hún er áhugaverð hlýtur að vera gaman að lesa hana ekki satt? Og auðvelt að skilja hana ekki satt? Lexía dagsins er því sú að spennandi titlar eru klárlega ofmetnir...
KL. 04:00 er svo sennilega kominn tími til þess að hvíla sig aðeins, senda kennaranum örvæntingarfullan tölvupóst, þar sem maður lýsir á varfærnislegan hátt óförum sínum og á milli línanna biður maður um gálgafrest á skilunum... Vaknar kl:08 og heldur áfram... jú, ekki frá því að þetta sé kannski örlítið auðveldara en síðastliðna nótt og ekki skemmir að kennarinn sendi póst til baka, fresturinn samþykktur og manni óskað góðs gengis... Allt á réttri leið... Við 5. yfirferð fer málið örlítið að skýrast og útdrátturinn ekki svo óhugnalegur lengur... textinn gæti jú reyndar verið rangt skilinn þar sem 85% af orðunum komu úr orðabók eða eru uppspuni því þau voru ekki til í orðabók? En ég meina... Hvað er það versta sem gæti gerst???

