Blóðbað og bál á Eggertsgötunnispjallari
Já, sambýlingur minn hún Ragnhildur dró fram tvo æðaleggi fyrr í kvöld og við ákváðum að æfa kunnáttu okkar og stinga hvor aðra. Mjög gaman. Það frussaðist reyndar hressilega úr mér þannig að það þurfti tvær aukahendur að láni frá Lilju til þess að afgreiða málið!! Vona að hún sé búin að jafna sig greyið.En þetta var nú bara formálinn að því skondnasta!! Hvað áttum við nefnilega að gera við nálarnar, blóðugar og mengaðar? Nei, ekki hendir maður þeim bara í venjulegt rusl, það væri glæpur. Og stendur ekki á gulu döllunum á spítalanum: ,, Sóttmengað- BRENNIST?''
Hins vegar var hópur ungmenna úti á túninu fyrir framan húsið og atburðarrásin frá þeirra sjónarhorni hefur kannski meira verið svona: Tvær stelpur koma út á svalir, báðar með risastóra plástra á handabökunum, troða nálum ofan í e-ð, hella einhverju yfir og kveikja í. Og það var heljarinnar bál sem myndaðist þarna á svölunum!! Saklaus ungmennin hafa eflaust dregið þá ályktun að það væru dópistar sem byggju í 202!!
En hvað sem öðru líður, þá eru nálarnar örugglega ekki smitandi lengur, ef einhver óáran skyldi búa í blóðinu okkar. Og nágrannarnir hafa eflaust meiri áhuga á okkur fyrir vikið:)
Meira seinna...
p.s. Svo mæti ég í fyrramálið á BUGL, útstungin með stæðarinnar hematóm á handabakinu:) Ávallt gaman að vera hjúkkunemi!!
Nú er ég sko pirruð!!!spjallari
13 bls af fyrirlestri HORFIÐ og óseifað!!! Aaaarg. Hvað gerir maður þá???Ætla henda upp í mig nokkrum mg af ibufeni róa höfuðverkinn og endurgera þetta show ; ) Róa mig bara við að ég er mjög heppin að vera við fulla heilsu. og gæti margt verra komið fyrir...
Róum taugarnar saman í kvöld yfir funky hvítvíninu sem við keyptum í gær...og sushi ; )
Bæó í bili,
verðum að standa saman á þessum erfiðum tímum...
Manu vælukjói
Rigor mortis!!spjallari
eða dauðastirðnun heitir víst ein black metal hljómsveit...maður lærir alltaf e-ð áhugavert í próflestri ; ) Svo eru tvær hljómsveitir sem heita postmortem og ein sem heitir því fallega nafni autopsy...frekar spes.Annars er ég ekki að nenna að læra fyrir þetta próf...hefði alveg farið létt með að fá mér eina hvítvín og skella mér á dansgólfið í gærkvöld.
Hvernig var annars helgin hjá ykkur?? Var farið inní þórsmörk?? Og já villus ertu að vinna kvöldvakt fös og laugard. kvöld næstu helgi??
bæjó í bili...
kv. Manu vælukjói
Þá er komið að því...spjallari
... ég er sest inná bókasafn og meiningin er að byrja að læra. Tjah, þegar ég er búin að fara blogg-rúntinn, facebook-rúntinn, barnalands-rúntinn, tékka HI- meilið... jámm!! Ætlaði líka að byrja kl.8 í morgun að læra, þurfti að vakna til þess að henda Þorsteini út úr rúminu... en þegar hann var farinn var bara oooof freistandi að skríða uppí aftur sem og ég gerði og svaf til kl. 11:30 þegar Lilja gerði tilraun til þess að vekja mig!! Jámm... ég er náttla alveg!!En semsagt... er búin að ákveða að flytja aðsetur mitt uppí VR fram til 14. maí næstkomandi... og er líka að spá í að taka tölvuna ekki með mér á morgun!! Ef einhver vill djoina í lærdómnum þá ætla ég alltaf að vera með kaffi á brúsa með mér... svona í tilefni kreppunnar
Annars vorum við á leitartækninámskeiði um helgina og það var bara alveg ágætt... bjóst alveg við því verra!! Það var mjög gott að Manú kom ekki með... og enn betra að hún komi ekki með til Köben
Jæja, hætt þessu rausi...
Kv, Villus
Þá er það ákvaðið..spjallari
Að kvöldi fimmtudags 12.júní lendi ég á klakanum...vííí..og verð yfir helgina
Ég vil fá skvísur, kaffitár, dansidjamm, gottaðborðameðstelpunum og almennt slúður og spjall
g e t e k k i b e ð i ð. Þetta verður killer. Make love, not war
Sigrún
Af hverju fæddist ég lúser...spjallari
... je, je, jeg er rangur maður á röngum tíma... var rétt í þessu sungið svo dásamlega í 12 radda falsettukór hérna á túninu á milli ÁsgarðablokkannaJæja, langaði að henda inn nýrri færslu, því páskafærslan verður sorglegri með hverjum deginum sem líður!! Ég er svo ótrúlega vakandi e-ð enda massív kvöldvakt af baki en þar sem það er líka morgunvakt í fyrramálið... semsagt eftir heila 6 klukkutíma þá ætla ég að leyfa partídýrunum úti á túni að syngja mig í svefn... spurning að kalla til þeirra að taka nú eitt rólegt og gott!!
Kv, Pollíanna
Gleðilega páska skvísurnar mínar!!spjallari
Ég verð bara að kvarta smá...spjallari
..ég er með svo ógeðslega vonda hálsbólgu og er að missa röddina
Get varlakyngt og varla talað. Svo er ég með smá hósta og ríf upp hálsinn þegar ég hósta.
Og ég verð að mæta í skólann á morgun því ég er að fara í verklegt. Ætla að halda
til upp í rúmi þangað til og Ásgeir þessi elska var að fara út í búð að kaupa ís handa
mér (það eina jákvæða).
Villa ég var að pæla, hver voru einkennin egar þú fékkst streptokokkana? Ég las á
netinu að það væri oftast ekki hósti með þeim og ég get ekki séð neitt hvítt ógeð
aftan í hálsinum...(sjáið þið mig ekki fyrir ykkur með tannbursta og hjólalukt að
vopni að gapa í spegilinn??
) Áttu ekki e-a sjúkdómabók??Jæja ég var að skrifa kvart/veikindafærslu. En hvað ég er skemmtileg...haha.
Ykkar Sigrún lasna í útlöndunum
Mánudagur til mæðu?spjallari
Tjah, það er sko spurning! Ég er allavega búin að vera á handahlaupum í morgun í allskonar útréttingum tengdum nýja heimilinu mínu. Fyrst þurfti ég að fara uppá skrifstofu stúdentagarða til þess að fá nýjan leigusamning... (hinn stakk sko af!) Svo niðrá þjóðskrá að flytja lögheimilið mitt. Svo til sýslumanns að fá þinglýstan leigusamning, svo í Vesturgarð að sækja um húsaleigubætur. Veiii... STUÐ!!Þá fór ég til umsjónarmanns fasteigna á stúdentagarðasvæðinu og hann tilkynnti mér að íbúðin væri eiginlega bara ekki tilbúin. Það þyrfti að mála og bóna gólfin og svona... iss... ég spurði hvort ég mætti samt fá lyklana lánaða í smá stund og fara að kíkja aðeins á pleisið sem og ég mátti. Hins vegar leist mér ekkert svakalega vel á þetta... doldið lítið og allt í drasli og drullu þarna inni!! Úff... ég var næstum með tárin í augunum þegar ég labbaði aftur út í bíl. Ég skilaði semsagt lyklunum með þeim skilaboðum að ég vildi endilega bíða aðeins lengur og fá í hendurnar nýmálað og bónað herbergi.
Jámm... þannig að það verða ekki flutningar í dag, ömmu eflaust til mikillar ánægju þar sem hún svaf varla vitandi það að ég ætlaði að brjóta hjátrúna sem segir að maður eigi ekki að flytja á mánudegi. Því eins og titill bloggsins segir þá er mánudagur til mæðu. Hins vegar er þriðjudagur til þrautar og enn verra, miðvikudagur til moldu...
En ég ætla ekkert að vera að pæla í gömlum hjátrúm og flyt bara inn þegar ég fæ lyklana afhenta á nýjan leik! Hvort sem það verður þraut eða molda verður bara að koma í ljós... og í tilefni þess að ég hef ekkert að gera núna (ekki fer maður að pakka þegar það eru tveir dagar í flutninga!) ætlum við Manú að skella okkur á eitthvað vel valið fjall... enda viðrar mjög vel til útiveru í dag. Ég er viss um að kvefið og hálsbólgan sem er að byrja að hrella mig hverfur í kalda vetrarloftinu!!
Adiós Villa
Allir að klæða sig vel...spjallari
Því það verður skítakuldi um helgina!!!Vildi líka láta vita við gætum þurft að ganga 10-15 mín að skálanum...svona svo við verðum ekki með of mikið dótarí ; )
