Gleðilegt nýtt ár :Dspjallari

Jæja... ákvað að heiðra þetta annars sorglega blogg með svosem eins og einni nýrri færslu... enda komið nýtt ár, tatarara... :)

Í fréttum er þetta helst... zzzZZZzzzZZZzzz... ég er haldin einkennilegri svefnáráttu, nokkuð sem ég hef ekki upplifað áður, tjah kannski sem smábarn en anyhow... virðist geta sofið allan sólarhringinn bara... kom t.d. heim áðan og ætlaði að leggja mig bara ogguponsusmástund, en nei... 3 tímar takk fyrir!  Og það þrátt fyrir að hafa sofið í 8 tíma í nótt og komið of seint í skólann að vanda...Aumingja lærdómurinn situr líka illilega á hakanum í staðinn, já... þetta er ljóta ástandið á bænum!! Öll góð ráð þegin???

Annars fyrir utan svefnsýki og almenna leti, þá er ég búin að vera í smá sjálfskoðun og búin að gera það upp við mig að ég nenni eiginlega ekki að fara í ljósmóðurina strax í haust... Langar að gera eitthvað skemmtilegt, enda er maður bara einu sinni ungur, ekki satt?? En það byggist jú allt á því að maður fái einhvers staðar vinnu... subway, bónus kannski... gæti vantað starfsmannahjúkku til að vinna með andlegu hliðina á starfsfókinu í Kreppunni??
Ja maður spyr sig...

En jæja... nóg af rausi... engu að síður uppvakning bloggsins, verðum nú eiginlega að standa okkur, enda styttist í þriðju árshátíð skvísuspjalls :D
Kv, Villa svefnpurrka sem verður á slysó ALLA helgina... (ef ég þá vakna zzZZzzZZzz...)

P.s. Óska Sigrúnu góðrar ferðar til Lon og Don, að hitta hann Ásgeir sinn:) Og hlakka til að hitta ykkur skvísur á eftir, er ótrúlega ánægð með hittingadugnaðinn undanfarið... keep up the good work:) Við Lilja erum næstar í að elda eitthvað handa okkur!

Athugasemdir

1
Manuela skrifar:
újeee dugleg ertu að blogga ; ) Skulum leggja okkur fram við að lenda í ævintýrum næstu daga til þess að hafa e-ð að blogga um.
Sigrún segir okkur kannski sögur frá útlandinu...
23. janúar 2009 klukkan 12:41
2
Manuela skrifar:
STELPUR!!!! ég held ég sé heimsk...held það ekki, ég veit það.
Ég hef bara prufað einn nettengil heima, en það eru víst tveir og annar þeirra er óvirkur...ætla reyna hinn á eftir og ef ég er búin að vera með netið í nokkra mánuði en bara ekki tékkað á hinni innstungunni...þá er virkilega e-ð að mér...
23. janúar 2009 klukkan 14:55
3
Villa skrifar:
Og þú ert búin að vera með netið í nokkra mánuði... sauðurinn minn!!!
26. janúar 2009 klukkan 10:23
4
Bryndís skrifar:
Gleðilegt ár ;) Ég á semsagt að vera að læra - eins og alltaf þegar ég tek bloggrúntinn... Gaman að sjá líf hér og þar !
01. febrúar 2009 klukkan 20:55

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: spjallari
  • Netfang: Sigrún:sib11@hi.is, Villa:vig5@hi.is, Lilja:lib2@h

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Hvort bloggið er betra?