Allir hressir?spjallari
Hvar er skrifgleðin stúlkur? Það þýðir ekki að plata, ég veit að þið farið á netið á hverjum degi!!;)
Annars ekkert að frétta af Eggertsgötu, enda finnst mér ég eiginlega búa í vinnunni þessa dagana. Og þegar ég er ekki í vinnunni reyni ég bara að sofa...
Ég er farin að hlakka mikið til föstudagskvöldsins og var að spá hvernig þið ætluðuð að hafa þetta? Farið þið allar í raunógrillið eða? Spurning hvar ég á að hitta ykkur eftir passeríið...
Jámm, ég fattaði mér það til skelfingar áðan þegar ég réð mig í vetrarvinnu að sumarið er bara að verða búið, og á þeirri sömu stundu tók geðheilsan smá dýfu niður á við... í nokkrar mínútur! Ég man bara ekki eftir því að eitt sumar hafi verið svona ótrúlega fljótt að líða... enda skemmtilegt sumar;) Ég er semsagt búin að ráða mig í 30% vinnu á slysó næsta vetur, ákvað að slíta endanlega naflastrenginn við Sunnuhlíð sem var nokkuð erfitt!!
Allavega... væri gaman að sjá smá lífsmark hérna á síðunni...
Kv, Villvill
Athugasemdir
http://www.youtube.com/watch?v=sWu1GI72AQE
en sérstaklega
http://www.youtube.com/watch?v=FQj_YL21yZc
Kemur mér allavega alltaf í stuð ; ) Hafið það gott og sjáumst á morgun

Næsta aksjón er reyndar dáldið mikið aksjón og ekki viss um að ég verði með...en ég ætla að reyna...fara í sjósund með strákunum á föstudaginn...læt ykkur vita hvort ég þori, eða frekar þoli kuldan.
En já varðandi föstudaginn, þá held það væri bara sniðugast þú myndir hringja í okkur þegar þú ert búin að passa, ekkert "plan" fyrir kvöldið...fyrir utan náttla byrja á raunógrillinu