spjallari

Jæja gæskurnar, þá er maður kominn heim úr helgarferðinni! Ekki amarlegt að geta skroppið á deit svona til annars lands? Hehe...annars höfðum við það afargott, gátum knúsað hvort annað og fórum út að borða öll 3 kvöldin, brasílíst, japanskt og ítalskt...Kreppa hvað? Kíktum líka í búðir og svona..og já, líka á Starbucks að sjálfsögðu!

Annars minni ég á lunch á Kaffitári á morgun, þær sem komast. Þá getið þið fengið details Wink Og svo áfram með dinnerana, Lil og Vil ég tek ykkur á orðinu...Því fyrr því betra!Kiss

Ást, Sigrún ( eða ziggy eins og bretarnir vildu kalla mig...blah!)

Gleðilegt nýtt ár :Dspjallari

Jæja... ákvað að heiðra þetta annars sorglega blogg með svosem eins og einni nýrri færslu... enda komið nýtt ár, tatarara... :)

Í fréttum er þetta helst... zzzZZZzzzZZZzzz... ég er haldin einkennilegri svefnáráttu, nokkuð sem ég hef ekki upplifað áður, tjah kannski sem smábarn en any how... virðist geta sofið allan sólarhringinn bara... kom t.d. heim áðan og ætlaði að leggja mig bara ogguponsusmástund, en nei... 3 tímar takk fyrir! Aumingja lærdómurinn situr illilega á hakanum í staðinn, já... þetta er ljóta ástandið á bænum!! Öll góð ráð þegin???

Annars fyrir utan svefnsýki og almenna leti, þá er ég búin að vera í smá sjálfskoðun og búin að gera það upp við mig að ég nenni eiginlega ekki að fara í ljósmóðurina strax í haust... Langar að gera eitthvað skemmtilegt, enda er maður bara einu sinni ungur, ekki satt?? En það byggist jú allt á því að maður fái einhvers staðar vinnu... subway, bónus kannski... gæti vantað starfsmannahjúkku til að vinna með andlegu hliðina á starfsfókinu í Kreppunni??
Ja maður spyr sig...

En jæja... nóg af rausi... engu að síður uppvakning bloggsins, verðum nú eiginlega að standa okkur, enda styttist í þriðju árshátíð skvísuspjalls :D
Kv, Villa svefnpurrka

P.s. Óska Sigrúnu góðrar ferðar til Lon og Don, að hitta hann Ásgeir sinn:) Og hlakka til að hitta ykkur skvísur á eftir, er ótrúlega ánægð með hittingadugnaðinn undanfarið... keep up the good work:) Við Lilja erum næstar í að elda eitthvað handa okkur!... Nánar

Smá random færslaspjallari

Var að koma úr bónus. Keypti einn poka plús klósettpappír og það kostaði 5700. SEX þúsund krónur!Cry Enda keypti ég munaðarvöru eins og ost... þetta er náttúrulega fáránlegt Yell 

En að máli málanna...til hamingju með afmælið elsku Manuela vona að þú eigir góðan dag þrátt fyrir þunglyndislegasta veður í heimi!

Ég átti mjög spes morgun sem byrjaði með sturtu og þvagprufu. Jább. Mjög gaman að taka hina fullkomnu þvagprufu skal ég sega ykkur! Enda var pissið mitt svona líka eðlilegt og alltsaman. Ekkert gaman að smásjárskoða það..hehe.

Núna ætla ég að fara ap fá mér að borða og taka til því íbúðin er ógeðsleg. Og svo læra. Ætla að hætta að tjá mig núna...

S

Leiðinlegt að vera símalausspjallari

....og lofa fara kaupa mér síma þegar sendingin kemur til tal.

Þar sem samskipti okkar þurfa að vera í gegnum tölvu eða í eigin persónu, þá var ég að spá hvort það væri einhver stemmning fyrir klifri í vikunni, miðviku eða fimmtudag??
Krissi er alveg að deyja úr spenningi yfir því að fara með stóru systur og viknkonum að klifra ; ) Vona bara það sé merki um þroska...hehe

Allavega, fyrir þá sem hafa áhuga þá var helgin í rólegri kanntinum. Innihélt eitt matarboð, eitt barnaafmæli, kringluferð og hjólatúr í biluðu roki og rigningu ; ) That´s it.

Höfðuð þið það ekki gott??
Manuela

Aksjón á Kleppsvegi 50spjallari

Vona það séu ekki allir búnir að gefa upp vonina...og að einhver leggi leið sína inn á þetta blogg.

Dagurinn í gær var ekki eins og hver annars þriðjudagur...ég gerði svolítið sem ég hef ekki gert síðan ég man eftir mér, fór heim veik úr vinnunni. Er semsagt orðin veikari en ég hef orðið síðan ég var krakki. Er með svo bólgna eitla að ég get ekki snúið hausnum á mér til hliðar, andlitið á mér er að springa og virðist ekki geta ákveðið mig hvort mér sé of heitt eða kalt...kvart, kvart get sjálfum mér um kennt að geta ekki tjillað aðeins heima hjá mér þegar ég verð smá veik. 

Allavega, nóg að kvarti um mig...aðal aksjón gærdagsins var þegar bróðir minn hringir í mig kl 10 um kvöldið, og biður um nr. hjá Huldu (siminn hjá pabba var dauður og hann er í sumarbústað með henni) vegna þess að lögreglan þarf að hringja í hann (pabba).  Fyrsta sem mig datt í hug var damn it þeir lentu í slagsmálum...en nei þá höfðu þeir verið að leika sér með dúkahníf (ekki spyrja mig hvers vegna og til hvers) og einn félagi Krissa hafði skorið sig í handlegginn svo djúpt að það sprautaðist blóð um allt...þeir hringdu á sjúkrabíl og með fylgdi lögreglubíll með.
Að sögn bróður míns og félaga var þetta eins og framið hefði morð á kleppsveginum, krissa var bannað að fara heim til sín, þeir voru inni með vasaljós að leita að dópi, hentu víst kristjáni upp við vegg þegar hann bentu þeim á ljósrofan...það var allavega aksjón hjá þeim.

Var í smá ævintýraleit og ákvað að kíkja á kleppsveginn, kærasta stráksins sem skarst var víst alveg í áfalli...og fannst alveg sniðugt að fara og tékka á henni, treysti 3 metal-gaurum til að sjá um hana....eina sem ég fékk að skipta mér að var brjálaður pabbi í símanum og krissi að tjúllast við hliðina á mér.  Þetta var nú meira ruglið.

Held þeir hafi lært smá lexíu...aldrei að leika sér með dúkahníf aftur.

Læt ykkur vita ef það verður framhald af þessari sögu...

Fyrsta vetrarfærslan... eða kannski réttara að segja fyrsta haustfærslan!spjallari

Hvenær er betra að henda inn nýrri bloggfærslu en nóttina áður en maður fer í próf? Það er nú einmitt þannig að maður nennir ekki að blogga nema þegar maður hefur eiginlega ekki tíma til þess, ekki satt!!
Já, sumarið er endanlega búið í mínum huga, enda veðrið í dag eins og það sé miður október. Fór í dúnúlpunni út í 10-11 í morgun, því það var svo kalt og hráslagalegt.  Veðrið var hins vegar það eina sem hélt mér við bækur og glósur í dag, allavega svona í skorpum. Náði að læra meira en ég hefði nokkurn tímann þorað að vona, en samt ekki næstum því nóg...en hvenær lærir maður samt nóg? Ég hef í það minnsta ekki farið í próf síðan í MH þar sem mér hefur fundist ég vera vel lærð!

En veturinn má svosem alveg koma, því þetta er búið að vera frábært sumar í alla stað, ekki sammála stúlkukindur? Göngur sumarsins heppnuðust vel, bæði Núpsstaðaskógur- Skaftafell og Fimmvörðuhálsinn, þó þær hafi verið skemmtilega ólíkar. Finnst samt svolítið sorglegt að hafa ekki komist í fleiri, en það verður bara næsta sumar...
    Þá tókst okkur að djamma nokkuð oft, en árshátíð skvísuspjalls var náttla toppurinn!! Hlakka til að ári, enda verður næsta árshátíð ekki bara haldin í Jien?? Í Frakklands road-trippinu okkar??!!
    Vonandi voru svo allir jafn ánægðir með vinnuna sína í sumar og ég var. Sá loksins eitthvað sem ég get hugsað mér að vinna við sem tengist þessu blessaða námi sem ég er í og það var mjög ánægjuleg uppgötvun! Og einmitt núna í fyrsta skipti á ævinni hefði ég getað hugsað mér að halda áfram að vinna, en venjulega hef ég ekki getað beðið eftir að komast í skólann aftur. Það vill nú samt til að þetta er síðasta árið... í bili allavega!

En já... þetta verður vonandi ekki síðasta færslan í ágúst... stelpur, koma svo!!
Kv, Villa pilla... sem er að fara í sumarpróf eftir 8 klst. og 40 mín....

Allir hressir?spjallari

Hvar er skrifgleðin stúlkur? Það þýðir ekki að plata, ég veit að þið farið á netið á hverjum degi!!;)
Annars ekkert að frétta af Eggertsgötu, enda finnst mér ég eiginlega búa í vinnunni þessa dagana. Og þegar ég er ekki í vinnunni reyni ég bara að sofa...

Ég er farin að hlakka mikið til föstudagskvöldsins og var að spá hvernig þið ætluðuð að hafa þetta? Farið þið allar í raunógrillið eða? Spurning hvar ég á að hitta ykkur eftir passeríið...

Jámm, ég fattaði mér það til skelfingar áðan þegar ég réð mig í vetrarvinnu að sumarið er bara að verða búið, og á þeirri sömu stundu tók geðheilsan smá dýfu niður á við... í nokkrar mínútur! Ég man bara ekki eftir því að eitt sumar hafi verið svona ótrúlega fljótt að líða... enda skemmtilegt sumar;) Ég er semsagt búin að ráða mig í 30% vinnu á slysó næsta vetur, ákvað að slíta endanlega naflastrenginn við Sunnuhlíð sem var nokkuð erfitt!!

Allavega... væri gaman að sjá smá lífsmark hérna á síðunni... 
Kv, Villvill 

Súrir draumar hvað???spjallari

Já, ég segi alltaf að mig dreymi aldrei neitt, tjah eða í það minnsta man ég aldrei eftir því sem mig dreymir. En greinilega dreymir mig eitt og annað, galdurinn til þess að muna draumana virðist bara vera að sofa á daginn í staðinn fyrir á nóttunni!!

Ég vaknaði allavega upp áðan, eftir að hafa sofið frá 08:20- 19:00!!! Og mundi drauminn minn... og miðað við ruglið sem mig greinilega dreymir get ég kannski þakkað fyrir að muna ekki oftar eftir þeim!!

Ég man nú bara rétt inntakið úr þessum draumi, en hann fjallaði aðallega um kókaín! (undirmeðvitundin... seisei!) Ég hafði semsagt keypt mér 800 g af eðalkókaíni og ætlaði svo að selja það til þess að græða peninga... það voru einhverjir HSSR strákar viðloðnir málið og Haukur sveitarforingi var sko aðalmaðurinn!! Nema hvað, kókaínið var komið heim á Eggertsgötuna og ég átti í geðveikum vandræðum að fela það... var að reyna að troða því ofan í skúffuna þar sem ég geymi pasta og hrísgjrón, en þá fór að leka úr pokanum og ég alveg á nálum að tapa vigtinni!! Dró fram litlu IKEA vigtina mína og bætti hveiti saman við til þess að þetta væru nú pottþétt 800g!!
Svo skyndilega fór ég að hafa áhyggjur af því að mér myndi ekkert takast að selja efnið, þar sem ég þekki engan sem notar slíkt!! Og það var alveg að koma að skuldadögum... þannig að ég tók helmnginn af efninu og mallaði það út í risastóran nautakjötspottrétt (þarna byrjar mesta steypan...) sem stóð svo bara á hellunni með loki ofaná. Ég fór svo bara að sofa, en á meðan fylltist eldhúsið hjá mér af einhverjum gaurum sem voru að leita að efninu og fundu það ekki (af því að klever ég, hafði sett það út í pottrétt!!)


Svo man ég ekki alveg hvað gerðist næst, en það voru allavega einhverjir tveir smákrakkar sem helltu öllum pottréttinum út af brú í einhverja á... og ég á bömmer skuldaði múltí peninga, Haukur brjálaður út í mig og pabbi kominn í málið... hehehehehe...


Púff... sko, er þetta kannski merki um að ég sé að tapa glórunni? Eða bara eðlileg afleiðing þess að vera á næturvakt!!!!

Kv, Villa sem er á leið á næturvakt 2/3... og er farin að vona að mig dreymi ekkert á morgun!!

Planið á næstunni!!spjallari

Verð að byrja á því að segja (skrifa) aftur takk fyrir síðast...er ennþá alltaf að hugsa um þessa ferð.

Annars ætlaði ég að tékka hvort það væri ekki smá stemmning að fara upp á móskarðshnjúk á morgun eftir vinnu, spáð mjög góðu veðri. Ef Villa vill vera svo væn að keyra, og við splæsum í bensín handa henni. (seinast þegar ég fór var pínu stórgrýtt og leiðinlegt að fara þetta á mjög lágum bíl). Jafnvel ef það er SÚPER veður er hægt að vera með nesti og borða á leiðinni niður. 

Svo var ég að spá hvort við myndum hittast heima hjá mér í smá tapaskvöld á þriðjudaginn, ræða aðeins um "planið" fyrir fimmvörðuháls og bara hittast aðeins...var að spá í að hafa e-ð allir koma með e-ð smotterí í matinn. Ætla tala við frænkur mínar sem ætla koma með, foreldra einars þannig að það verður bara opið hús ; ) Endilega draga foreldra og kærast með...vona bara við komumst fyrir...

Hvernig fer þetta í ykkur?? Komist þið og erið til í þetta plan?? ; )

sjáumst 
Manuela

Já... það er alltaf hægt að finna eitthvað fyrir alla...spjallari

      

Tilraun til þess að lífga aðeins uppá bloggið....
Kv, Villa

 

Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: spjallari
  • Netfang: Sigrún:sib11@hi.is, Villa:vig5@hi.is, Lilja:lib2@h

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Hvort bloggið er betra?